VIÐSKIPTASKILMÁLAR NETGÍRÓ.
1.4.2022
1. Aðilar skilmála
a. Samningur er gerður milli viðskiptavinar og Netgíró greiðslumiðlun, kt. 510122-2830. Viðskiptavinur er sá sem uppfyllir ákvæði þessa viðskiptaskilmála og hefur verið samþykktur af Netgíró.
b. Eftir því sem við á gilda Almennir skilmálar vegna viðskipta við Kviku banka hf. (hér eftir „Almennir viðskiptaskilmálar Kviku“) einnig um viðskipti viðskiptavinar og Netgíró en viðskiptaskilmálar Netgíró ganga þó framar ef í milli ber, sbr. greinar 1.1. og 1.2. í Almennum viðskiptaskilmálum Kviku.
2. Umsókn viðskiptavinar.
a. Allir þeir sem hafa náð 18 ára aldri, eru fjárráða, með íslenska kennitölu, eru með lögheimili á Íslandi og eru með netfang og farsímanúmer sem gefið er upp í samskiptum við Netgíró er heimilt að sækja um aðgang að Netgíró með því að fylla út umsókn á vefsvæði Netgíró, í snjallsímaforriti (e. App) eða með öðrum leiðum sem eru í boði á hverjum tíma.
b. Á grundvelli samþykkis viðskiptavinar aflar Netgíró nauðsynlegra upplýsinga til að meta láns- og greiðsluhæfi viðskiptavinar og hvort hann standist önnur skilyrði sem Netgíró setur gagnvart viðskiptavinum sínum. Er matið byggt á upplýsingum um lánshæfi og vanskil sem sótt eru í gagnagrunn Creditinfo og á útlánamati Netgíró, sem byggir á upplýsingum um fyrri viðskipti viðskiptavinar við Netgíró. Netgíró áskilur sér rétt til að hafna umsókn um viðskipti á grundvelli lánshæfis- og greiðslumats.
c. Vilji viðskiptavinur afturkalla umsókn sína skal hann tilkynna það skriflega til Netgíró með því að senda tölvupóst á netfangið netgiro@netgiro.is.
3. Gildistaka.
a. Samningur aðila tekur gildi um leið og viðskiptavinur hefur staðfest skráningu með samþykki skilmála Netgíró.
4. Hámarksúttekt, greiðslur og reikningsyfirlit.
a. Viðskipti með Netgíró eru bundin við ákveðnar hámarksúttektarheimildir sem eru byggðar á útlánamati Netgíró og lánshæfismati Creditinfo.
b. Viðskiptavinir Netgíró geta valið um að greiða með þeim greiðslumöguleikum sem í boði eru hverju sinni hjá Netgíró. Verðskrá fyrir þjónustu Netgíró má nálgast á https://www.netgiro.is/verdskra.
c. Viðskiptavinur getur, innan 14 daga frá kaupum, breytt 14 daga reikningi í raðgreiðslur á „Mínar síður“ á https://www.netgiro.is/ eða í gegnum snjallsímaforrit Netgíró (e. App). Greiðslur skulu berast Netgíró samkvæmt dagsetningum sem Netgíró ákveður og birtast í netbanka viðskiptavinar. Viðskiptavinur getur ekki breytt greiðslum sem greiddar hafa verið með greiðslukortum.
d. Viðskiptavinur getur hvenær sem er greitt úttektir að fullu. Úttektir lækka aðeins þegar greiðslur berast til Netgíró.
e.Ef viðskiptavinur skilar vöru til söluaðila er það háð skilareglum söluaðila hvort úttekt hjá Netgíró lækki því sem vöruskilum nemur eða viðskiptavinur fái inneignarnótu. Ef skilareglur seljanda leyfa endurgreiðslu ber seljanda að tilkynna Netgíró um vöruskilin og mun úttekt viðskiptavinar lækka sem vöruskilunum nemur eða hluti fjárhæðar endurgreiddur eftir því sem við á. Ef greiðsla hefur átt sér stað með greiðslukorti er fjárhæð endurgreidd inn á viðkomandi greiðslukort. Viðskiptavinir Netgíró greiða vexti, tilkynningar- og greiðslugjald, mánaðargjald, lántökugjald og færslugjald sem falla til vegna notkunar, í samræmi við verðskrá Netgíró.
f. Viðskiptavinur greiðir tilkynninga- og greiðslugjald skv. verðskrá Netgíró sem má nálgast á www.netgiro.is/verdskra.
g. Netgíró stofnar kröfur í netbanka viðskiptavinar vegna úttekta. Viðskiptavinur getur nálgast reikningsyfirlit á „Mínar síður“ á https://www.netgiro.is/eða í gegnum snjallsímaforrit Netgíró (e. App). Á yfirlitinu má sjá úttektir og innborganir viðskiptavina sem og aðrar gagnlegar upplýsingar. Um greiðslur með greiðslukortum, sjá 5 gr. í skilmálum þessum.
h. Við skil eða breytingu á vöru eða þjónustu sem leiðir til verðbreytinga er Netgíró heimilt að breyta reikningi í samræmi við verðbreytinguna, hvort sem er til lækkunar eða hækkunar. Innheimti söluaðili sérstakt breytingargjald fyrir verðbreytingu eða vöruskilum skal það innheimt með útgáfu á nýjum Netgíró reikningi fyrir breytingargjaldinu í samræmi við þær upplýsingar sem söluaðili sendir til Netgíró. Viðskiptavinur hefur 14 daga greiðslufrest til að greiða reikning vegna breytingargjalds eða vöruskila.
5. Greiðslur með greiðslukortum
a. Viðskiptavinur Netgíró getur greitt fyrir Netgíróviðskipti með greiðslukortum.
b. Viðskiptavinur skráir greiðslukortanúmer sitt hjá Netgíró. Netgíró geymir ekki greiðslukortanúmer heldur styðst við svokallað sýndarnúmer sem notað verður framvegis og því er kortanúmer viðskiptavinar hvergi sjáanlegt.
c. Ef greitt er með greiðslukorti fyrir Netgíróviðskipti skuldfærist greiðslan á kort viðskiptavinar.
d. Netgíró er heimilt að takmarka úttektir af greiðslukortum við ákveðnar hámarksfjárhæðir sem Netgíró ákveður í hverju tilfelli fyrir sig og viðskiptavinur er upplýstur um á „Mínum síðum“.
e. Takist ekki að skuldfæra greiðslukort viðskiptavinar hefur Netgíró heimild til að stofna kröfu í netbanka viðkomandi með úttektarfjárhæð að viðbættum kostnaði. Um vanefndir, sjá 9. gr. skilmála þessa. Gjalddagi kröfunnar miðast við stofnun hennar.
6. Boðgreiðslur
Viðskiptavinur getur greitt áskriftir með boðgreiðslum. Ef greiðsla/afborgun vegna boðgreiðslu er ekki greidd að 31 dögum frá eindaga liðnum fellur boðgreiðslusamningur niður með uppsögn samningsins. Netgíró tilkynnir bæði viðskiptavini og söluaðila um uppsögn boðgreiðslusamnings og er hann þá niðurfallinn. Netgíró ber ekki ábyrgð á greiðslu til áskriftaraðila eftir að boðgreiðslusamningi hefur verið sagt upp.
7. Netgíró lán
a. Viðskiptavinir Netgíró geta óskað eftir Netgíró láni. Lánsfjárhæð ákvarðast af lánshæfismati viðskiptavinar og útlánamati Netgíró.
b. Netgíró skuldbindur sig til að greiða lánið inn á bankareikning viðskiptavinar eftir undirritun lánssamnings.
c. Lánssamningur telst bindandi frá þeim tíma sem lánssamningurinn er undirritaður með rafrænum hætti.
d. Lántaki skuldbindur sig til að endurgreiða lánið með eftirfarandi hætti:
1. Lántaki greiðir lánið með jöfnum afborgunum m.v. vexti samkvæmt verðskrá Netgíró á hverjum tíma, þar til lánið auk vaxta og kostnaðar er að fullu uppgreitt.
2. Netgíró stofnar kröfur í netbanka viðskiptavinar fyrir hvern gjalddaga.
3. Viðskiptavini er heimilt að greiða lánið fyrir umsaminn gjalddaga, að hluta eða öllu leyti, án greiðslu sérstaks uppgreiðslugjalds, að undangenginni tilkynningu þar að lútandi til Netgíró, sem í kjölfarið stofnar kröfur í netbanka viðskiptavinar.
e. Að öðru leyti vísast til skilmála þessara.
8. Villur og athugasemdir
a. Ef viðskiptavinur hefur athugasemdir varðandi reikninga skulu slíkar athugasemdir tilkynntar skriflega til Netgíró fyrir eindaga. Að öðrum kosti telst reikningur réttur.
b. Netgíró tekur ekki ábyrgð á gallaðri vöru sem greitt er fyrir með Netgíró. Kvörtunum vegna slíkra atvika skal beina til viðkomandi seljanda. Netgíró ber enga ábyrgð á gæðum keyptrar vöru eða þjónustu.
c. Netgíró ber ekki ábyrgð á því ef viðskiptavini er hafnað af söluaðila um úttekt af reikningi sínum hjá Netgíró, né því tjóni sem leitt getur af því atviki.
d. Telji viðskiptavinur að greiðsla með Netgíró hafi verið gerð með sviksamlegum hætti ber honum að tilkynna Netgíró það án tafar. Ávallt þegar grunur leikur á um sviksamlega notkun mun Netgíró loka fyrir reikning viðskiptavinar. Viðskiptavini ber skylda til að aðstoða Netgíró við úrvinnslu málsins og takmarka tjón eins og kostur er.
9. Eindagi greiðslna, vanskil og aðrar vanefndir.
a. Ef viðskiptavinir greiða ekki úttektir sínar á eindaga, reiknast dráttarvextir eins og þeir eru auglýstir af Seðlabanka Íslands hverju sinni, af úttektum frá gjalddaga til greiðsludags. Á meðan viðskiptavinur er í vanskilum áskilur Netgíró sér rétt til að loka fyrir frekari viðskipti, þar til gjaldfallin skuld er að fullu uppgerð.
b. Ef reikningur, afborgun láns og/eða raðgreiðslusamnings eru í vanskilum, 14 dagar eru liðnir frá eindaga, og ekki hefur verið samið um greiðslu þeirra, verða eftirstöðvar þeirra lána/raðgreiðslusamninga sem eru í vanskilum gjaldfelldar. Við gjaldfellingu ber viðskiptavini að greiða eftirstöðvar þeirra auk vaxta og kostnaðar.
c. Netgíró áskilur sér rétt til að krefja viðskiptavin um útlagðan kostnað og gjöld sem fyrirtækið verður fyrir vegna viðskiptavinar svo sem við mat á útlánaheimildum og lánshæfi. Við innheimtu gjaldfallins kostnaðar eða gjalda er farið eftir innheimtulögum nr. 95/2008 og reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl. nr. 37/2009.
d. Viðskiptavinur Netgíró heimilar Netgíró að óska skráningar á vanskilaskrá Creditinfo á vanskilum viðskiptavinar sem hafa varað í að minnsta kosti 40 daga frá eindaga að öðrum skilyrðum uppfylltum. Nánari upplýsingar má finna á https://www.creditinfo.is/lausnir-og-gogn/vanskilaskra.aspx
e. Við verulegar vanefndir viðskiptavinar á skuldbindingum sínum samkvæmt samningi hefur Netgíró heimild til að gjaldfella alla reikninga viðskiptavinar þegar í stað. Gjaldfelling reikninga hefur sömu þýðingu og að allir reikningar séu komnir á eindaga. Verulegar vanefndir viðskiptavinar teljast að mati Netgíró hafa orðið þegar eitthvert af eftirfarandi atriðum hefur átt sér stað:
i. Reikningar og/eða afborgun raðgreiðslusamnings frá Netgíró eru komnir fram yfir eindaga án þess að samið hafi verið um greiðslu.
ii. Gjaldfellingarheimild í fjármálagerningi þar sem viðskiptavinur er skuldari eða ábyrgðarmaður er nýtt af kröfuhafa, viðskiptavinur er dæmdur af Héraðsdómi til greiðslu peningaskuldar, gert er fjárnám eða árangurslaust fjárnám í eignum/réttindum viðskiptavinar, viðskiptavinur óskar eftir greiðslustöðvun, viðskiptavinur leitar eftir nauðasamningum, frjálsum nauðasamningum, nauðasamningum samkvæmt lögum nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., lögð er fram beiðni um gjaldþrotaskipti á búi viðskiptavinar, beiðni er lögð fram um nauðungarsölu á eignum viðskiptavinar, viðskiptavinur leitar eftir greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara eða verulega líkur eru á því að mati Netgíró að viðskiptavinur geti ekki staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar.
iii. Viðskiptavinur tekur upp fasta búsetu utan Íslands.
iv. Viðskiptavinur hefur gefið Netgíró rangar upplýsingar við skráningu.
f. Öll misnotkun á viðskiptareikningi varðar við almenn hegningarlög nr. 19/1940 og verður kærð til lögreglu.
10. Vextir.
a. Vextir sem í boði eru fyrir lán á hverjum tíma eru birtir í verðskrá Netgíró á heimasíðu þess, www.netgiro.is/verdskra.
b. Lánið ber fasta óverðtryggða ársvexti. Vextir reiknast daglega frá útborgunardegi lánsins. Notast er við dagaregluna Act/365 fixed.
11. Persónuupplýsingar og meðferð þeirra
a. Netgíró óskar eingöngu eftir þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að þjónusta viðskiptavini sína eða lög eða reglur kveða á um að aflað sé. Sama á við um þær persónu-upplýsingar sem Netgíró aflar um viðskiptavini sína hjá opinberum aðilum, s.s. þjóðskrá. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar í þeim tilgangi sem þeirra var aflað. Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga er gerð í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, almennu persónuverndar¬reglugerð Evrópusambandsins nr. 2016/679 („GDPR“) og lög nr. 81/2003 um fjarskipti.
b. Gagnagrunnur Netgíró heldur með rafrænum hætti utan um upplýsingar um viðskiptavini, viðskipti þeirra og samskipti milli þeirra og Netgíró. Þá heldur gagnagrunnurinn utan um samninga sem viðskipavinir gera við Netgíró. Þær persónuupplýsingar sem berast til Netgíró eru skráðar rafrænt í gagnagrunn Netgíró. Viðskiptavinur samþykkir að Netgíró noti kennitölu hans sem ígildi notendanafns í tölvukerfi og gagnagrunni Netgíró. Allar persónuupplýsingar sem skráðar eru í gagnagrunn Netgíró eru dulkóðaðar.
c. Samkvæmt 48. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003 hefur Netgíró heimild til að hljóðrita símtöl við viðskiptavini. Tilgangur með upptökum á símtölum er að varðveita heimildir um samskipti milli aðila og bæta gæði þjónustunnar.
d. Við umsókn um viðskipti óskar Netgíró eftir sérstöku samþykki viðskiptavinar til að afla gagna og upplýsinga úr gagnagrunni CreditInfo hf. Með samþykkinu veitir viðskiptavinur Netgíró fullt umboð til að kalla eftir upplýsingum um lánshæfismat sitt hjá Creditinfo og skrá viðskiptavin á lánshæfis¬vöktun. Með samþykki viðskiptavinar heimilar hann Netgíró jafnframt að miðla kennitölu og skráðu netfangi sínu til Creditinfo vegna uppflettinga á lánshæfismati og að Creditinfo geti sent tilkynningu með tölvupósti þess efnis til viðskiptavinar. Heimildir og kjör breytast til samræmis við breytingar á lánshæfismati umsækjanda.
e. Ákvörðun um fjárhæð heimilda og kjör er tekin með sjálfvirkri gagnavinnslu og kann niðurstaða slíkrar vinnslu að leiða til sjálfvirkar höfnunar viðskipta, s.s. vegna skráningar umsækjanda á vanskilaskrá CreditInfo hf. Viðskiptavinur samþykkir að veita Netgíró heimild til þess að byggja ákvörðun um veitingu þjónustu, fjárhæð úttektar- og útlánaheimilda og vaxtakjör á sjálfvirkri gagnavinnslu sem byggir einkum á samkeyrslu lánshæfismats, skuldastöðu og útlánamats.
f. Samkvæmt lögum nr. 33/2013 um neytendalán er lánveitendum skylt að meta lánshæfi umsækjenda áður en lánasamningur er gerður. Upplýsingar um lánshæfismat eru jafnframt sóttar í þeim tilgangi að ákvarða fjárhæð úttektar- og útlánaheimilda viðskiptavinar hjá Netgíró og til að uppfæra umræddar úttektar- og útlánaheimildir. Komi í ljós við mat á láns- og greiðsluhæfi viðskiptavinar að viðkomandi sé á vanskilaskrá áskilur Netgíró sér rétt til að hafna viðskiptavini um viðskipti.
g.Lánshæfismat spáir fyrir um líkur á alvarlegum vanskilum í framtíðinni og byggir á upplýsingum sem Creditinfo safnar og/eða miðlar, svo sem upplýsingum úr vanskilaskrá, hlutafélagaskrá, skattskrá o.fl. Lánshæfismatið byggir á samkeyrslu gagna og getur innihaldið sögulegar upplýsingar, svo sem um stöðu vanskila og lánshæfismats. Nánari upplýsingar um lánshæfismat Creditinfo má finna á www.creditinfo.is.
h. Upplýsingar um viðskiptavin og lán hans eða úttekt, auk upplýsinga sem liggja til grundvallar lánsheimildar hans og úttektarheimildar, kunna að vera framseldar samhliða framsali á réttindum og skyldum Netgíró, sbr. ákvæði 16.c. þessara skilmála. Upplýsingar verða eingöngu framseldar íslenskum viðskiptabönkum eða dótturfélögum þeirra, þannig að öryggi og trúnaður sé tryggður með þeim hætti sem krafa er gerð um samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og samkvæmt tilmælum Fjármálaeftirlitsins. Þær upplýsingar um viðskiptavin sem geta verið framseldar samkvæmt þessu ákvæði eru upplýsingar um kennitölu, fjárhæð og skilmála fjármögnunar og lánshæfismat viðskiptavinar.
i. Viðskiptavini er heimilt að afturkalla samþykki um öflun og vöktun lánshæfismats hvenær sem er og skal slík afturköllun taka gildi þegar Netgíró hefur sannanlega móttekið slíka afturköllun. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á lögmæti vinnslu á grundvelli samþykkisins fram að afturköllun. Þá fellur samþykki þetta úr gildi þegar viðskiptasambandi aðila lýkur. Fram til þess tíma hefur Netgíró heimild til að sækja og nota þær upplýsingar sem samþykki þetta tekur til að fullnægðum þeim skilyrðum sem fram koma hér að ofan. Samþykkir fyrir vinnslu ofangreindra gagna er forsenda fyrir samningssambandinu. Afturkalli viðskiptavinur samþykki þetta getur Netgíró hafnað honum um frekari viðskipti.
j. Nánari upplýsingar um meðferð Netgíró á persónuupplýsingum vísast til persónuverndarstefnu félagsins á eftirfarandi slóð https://www.netgiro.is/personuverndarstefna/.
12. Markaðsefni
a. Netgíró notar þær persónuupplýsingar sem félagið aflar frá viðskiptavinum í tengslum við markaðs- og viðskiptakannanir og aðgerðir sem draga úr áhættu viðskipta og leiða til hærra gæðamats. Viðskiptavinur hefur ávallt rétt á því að andmæla vinnslu persónuupplýsinga í þágu beinnar markaðssetningar.
b. Netgíró sendir viðskiptavinum sínum markpóst og annað markefni á grundvelli samþykkis viðskiptavinar og lögmætra hagsmuna félagsins. Viðskiptavinum er heimilt að afþakka markpóst með afskráningu af tölvupóstlistum Netgíró.
13. Samskipti og mikilvægar upplýsingar
a. Við staðfestingu skráningar skuldbindur viðskiptavinur sig að hlíta þeim kjörum og skilmálum sem gilda um þjónustu Netgíró á hverjum tíma. Verði breytingar á upphaflegri skráningu, t.d. á heimilisfangi, símanúmeri eða netfangi, skal viðskiptavinur breyta upplýsingum á „Mínar síður“ á www.netgiro.is eða tilkynna breytingu til Netgíró með því að hafa samband við þjónustuver. Netgíró sækir slíkar upplýsingar til Þjóðskrár til þess að tryggja rétta skráningu viðskiptavinar. Verði dráttur á tilkynningu um breytingu eða ef breytingar berast ekki til Netgíró getur Netgíró ekki ábyrgst að tilkynningar berist viðskiptavini á tilsettum tíma.
b. Undir tilkynningar frá Netgíró falla meðal annars staðfestingar á breytingum viðskiptavina, tilkynningar varðandi samningsskilmála, breytingar á þeim og breytingar á verðskrá. Netgíró sendir tilkynningar til viðskiptavina ýmist með rafrænum pósti, bréfpósti og smáskilaboðum (SMS og „push notifications“).
c. Notkun tölvupósts og annarra rafrænna samskiptaleiða getur falið í sér áhættu, s.s. að slík samskiptaleið tryggi ekki leynd eða öryggi samskipta. Netgíró ber enga ábyrgð á tjóni sem viðskiptavinur kann að verða fyrir vegna þess að framangreindar samskiptaleiðir voru notaðar. Þjónustuver Netgíró framkvæmir reglulega áreiðanleikakannanir viðskiptavina með því að fylgja pöntunum eftir með símtali eða tölvupósti. Sjá opnunartíma þjónustuvers hér: https://www.netgiro.is/thjonustuver/
14. Uppsögn samnings.
a. Á milli Netgíró og viðskiptavinar gilda lög nr. 33/2005 um fjarsölu á fjármálaþjónustu. Samkvæmt ákvæðum þeirra laga hefur viðskiptavinur rétt til að falla frá samningi án greiðslu og viðurlaga og án þess að tilgreina nokkra ástæðu, ef viðskiptavinur sendir tilkynningu þar að lútandi til Netgíró innan 14 daga frá þeim degi sem viðskipti áttu sér stað.
b. Frestur til að falla frá samningi byrjar að líða þegar kaup með Netgíró hafa átt sér stað. Ef síðasti dagur frestsins fellur á helgi eða er frídagur, lýkur frestinum næsta virka dag. Falli nú viðskiptavinur frá samningi eftir að umsókn hans berst Netgíró, en áður en umsókn er afgreidd, hefur Netgíró heimild til að krefja viðskiptavin um greiðslu fyrir þá þjónustu sem þegar hefur verið innt af hendi, samanber ákvæði 14. gr. laga um fjarsölu á fjármálaþjónustu. Ef viðskiptavinur óskar eftir því að falla frá samningi í samræmi við framangreint skal viðskiptavinur senda beiðni sína skriflega til Netgíró áður en fresturinn rennur út. Netgíró getur krafið viðskiptavin um greiðslu fyrir þá þjónustu sem þegar hefur verið innt af hendi að ósk viðskiptavinar áður en frestur til að nýta sér rétt til að falla frá samningi var liðinn. Til að tryggja sönnun á ósk um að falla frá samningi er t.d. hægt að fara þá leið að senda bréf til Netgíró með ábyrgðarpósti og geyma kvittun frá póstinum. Réttur til að falla frá samningi gildir ekki um þá samninga sem hafa verið efndir að fullu af öðrum eða báðum aðilum að ósk viðskiptavinar.
c. Tilkynningu um að viðskiptavinur falli frá samningi skal beina til Netgíró með sannanlegum hætti. Óski viðskiptavinur eftir að segja upp samningssambandi við Netgíró af öðrum ástæðum skal tilkynningu þess efnis beint til heimilisfangs og netfang Netgíró með sannanlegum hætti. Eftir uppsögn getur viðskiptavinur ekki óskað eftir frekari þjónustu nema að sækja um aðgang að Netgíró að nýju.
15. Breyting á skilmálum.
a. Netgíró áskilur sér allan rétt til breytinga á skilmálum þessum. Ef um er að ræða breytingar sem eru ekki til hagsbóta fyrir viðskiptavin skal tilkynna honum um þær á tryggan hátt með minnst 14 daga fyrirvara fyrir gildistöku breytinganna.
b. Í tilkynningu um breytta skilmála skal taka fram í hverju breytingarnar felast og á rétti viðskiptavina til að slíta viðskiptum. Við notkun á Netgíró eftir að breyttir skilmálar taka gildi telst viðskiptavinur hafa samþykkt breytinguna.
c. Birting breyttra skilmála með tilkynningu til viðskiptavina á skráð netfang telst nægileg tilkynning.
16. Ýmis ákvæði.
a. Viðskiptaskilmálar þessir, Almennir viðskiptaskilmálar Kviku og samningar sem gerðir eru á grundvelli þeirra á milli Netgíró og viðskiptavinar eru tæmandi lýsing á samningssambandi aðila, réttindum þeirra og skyldum og ganga framar fyrri skuldbindingum. Ef ákvæði viðskiptaskilmála eða samnings verður metið andstætt lögum skal það ákvæði teljast ógilt en önnur ákvæði skulu að öðru leyti standa óbreytt og halda áfram gildi sínu milli Netgíró og viðskiptavinar.
b.. Viðskiptavinum er óheimilt að framselja réttindi sín eða skyldur samkvæmt skilmálum þessum eða samningum þriðja aðila nema með fyrirfram fengnu skriflegu samþykki Netgíró.
c.Netgíró er heimilt að framselja réttindi sín og skyldur samkvæmt skilmálum þessum eða samningum aðila, í heild eða að hluta, til þriðja aðila án samþykkis viðskiptavina í fjármögnunartilgangi. Ekki er heimilt að framselja réttindi og skyldur Netgíró til annarra en íslenskra fjármálafyrirtækja, eða dótturfélaga þeirra, sem á hvílir trúnaðarskylda samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
d.Skilmálar þessir eru með fyrirvara um ákvarðanir stjórnvalda, styrjalda, kjarnorkuslysa eða atriða sem talin verða falla undir “force majeure” tilvik þannig að aðilum verði ómögulegt að efna skilmála þessa og samninga aðila. Í þeim tilvikum getur Netgíró að undangenginni tilkynningu til viðskiptavinar gjaldfellt reikning með 10 daga fyrirvara. Þá eru aðilar einnig sammála um að ákveði yfirvöld, t.d. skattayfirvöld, að leggja á skatta, gjöld eða álögur á viðskipti sem samningsskilmálar þessir taka til, skuldbindur viðskiptavinur sig til að greiða slíkt beint til viðkomandi yfirvalda að skaðlausu fyrir Netgíró.
e. Netgíró ber ekki ábyrgð á tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að orsakast af vanefndum eða öðrum misgjörðum innlánsstofnana, þ.e. banka og/eða sparisjóða sem viðskiptavinir eru í viðskiptum við.
f. Netgíró ber ekki ábyrgð á tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að orsakast af tæknilegum bilunum eða villum í hugbúnaði, stýrikerfum, netkerfum, fjarskiptakerfum, rofi eða truflunum í slíkum kerfum, rafmagnsleysi, bilunum og truflunum í tækjum og vélbúnaði hvort sem slíkur búnaður er í eigu Netgíró eða notaður af Netgíró eða af hálfu annarra. Viðskiptavinur getur ekki krafið Netgíró um bætur vegna tjóns, beins eða óbeins, vegna sambandsleysis, rofa á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskiptanetsins hvort sem slíkt má rekja til línubilana, bilana í stöðvum eða annarra ástæðna, sbr. 40. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti. Ef þau tilvik sem ofan greinir koma í veg fyrir að Netgíró geti staðið við samningsskyldur sínar við viðskiptavin sinn, í heild eða að hluta, frestast skylda Netgíró þar til framangreindu ástandi léttir og hægt er að framkvæma þær. Ef framangreint ástand leiðir til þess að ekki er hægt að inna af hendi greiðslur eða taka við greiðslum í samræmi við samningsskyldur, skulu hvorki viðskiptavinur né Netgíró þurfa að greiða vexti vegna þess að greiðslur frestast.
g. Netgíró ber ekki ábyrgð á tjóni sem þriðji aðili kann að valda.
17. Ágreiningur og lögsaga.
a. Viðskiptavinur skal beina öllum ábendingum beint til þjónustuvers Netgíró.
b. Aðilar eru sammála um að reyna að jafna ágreining sem kann að rísa í tengslum við efni samnings, efndir hans eða annað, sín á milli. Takist það ekki eru aðilar sammála um að leggja þann ágreining fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Um samning aðila gilda íslensk lög.
c. Kröfumál gegn viðskiptavini má reka gegn honum í því landi þar sem hann telst hafa fasta búsetu hverju sinni, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 21/1990 um lögheimili.
18. Aðgerðir gegn peningaþvættig og fjármögnun hryðjuverka.
a. Á grundvelli laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 ber Netgíró að afla fullnægjandi upplýsinga um viðskiptavini sína og fyrirhuguð viðskipti.
b. Með staðfestingu á skilmálum þessum staðfestir viðskiptavinur að tilgangur viðskipta brjóti ekki gegn framangreindum lögum eða öðrum lögum eða reglugerðum sem settar hafa verið á sama grundvelli.
19. Gildistaka.
Skilmálar þessir gilda frá 1.4.2022
Netgíró greiðslumiðlun
kt.510122 -2830
Katrínartún 2
105 Reykjavík
sími 430-0330